Glatað tækifæri til að mótmæla?

Fyrirhuguð heimsókn menntamálaráðherra Ísrels hefði verið tilvalið tækifæri til að mótmæla framferði Ísrelsmanna. Ég er nokkuð viss um að heimsóknin hefði kallað á fjölmennustu mótmæli Íslandssögunnar, því ég held að flestum eða ekki öllum sé farið að blöskra þessi ótrúlega grimmd sem þeir sýna.
mbl.is Heimsókn Ísraela til Íslands afþökkuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Athugasemdir

1 Smámynd: Sveinn Tryggvason

Það er mikil grimmd sem býr að baki dauða saklausta borgara á Gasa - það er hins vegar grimmd öfgafullra Hamas-manna sem þar er fyrst og fremst um að kenna. 

Ákvörðun íslenskra stjórnvalda um fordæmingu er óskynsamleg, vanhugsuð og til þess fallin að enn fleiri saklausir borgarar láti lífið eins og ég færi rök fyrir hér. Hvet þig til að gera tilraun til að setja þig inn í opinbera afstöðu og baráttuaðferðir beggja aðila málsins og segðu síðan skoðun þína á málinu.

Obama virtist skilja klemmu Ísraelsmanna ágætlega þegar hann heimsótti Sderot síðasta sumar.

Sveinn Tryggvason, 16.1.2009 kl. 23:35

2 Smámynd: Sveinn Tryggvason

Sveinn Tryggvason, 16.1.2009 kl. 23:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband